Golfvöllurinn Glanni verður opnaður laugardaginn 23. maí nk. Vinna við undirbúning vallarins hefur staðið yfir og allt er klárt fyrir opnun. Búið er að opna fyrir skráningar inn á Golfboxinu / Mitt Golf. Nauðsynlegt er að bóka tíma inn á Golfboxinu áður en rástími hefst.

Greiðsla fer fram í gegnum Golfboxið en einnig er hægt að greiða vallargjald í golfskála á opnunartíma hans. Utan opnunartíma verður að skrá iðkendur og greiða vallargjald í greiðsluposa sem er í viðbyggingunni.